Við kyndum undir eftirvæntingunni eftir komandi jólabókum með því að bjóða lesendum að kynna sér innihald nokkurra spennandi bóka sem eru á leiðinni. Í vikunni var dreift fjórum „kitlum“ í bókabúðir og á kaffihús en þær innihalda kaflabrot úr spennusögum sem koma út á næstu vikum. Hér á síðunni getur þú líka gluggað í innihald þeirra. Smelltu á hlekkinn og kynntu þér það sem koma skal.
Brot úr spennusögu Árna Þórarinssonar, Morgunengill. Grípandi saga úr íslenskum samtíma þar sem Einar blaðamaður á Síðdegisblaðinu snýr aftur. Besta bók Árna til þess að mati gagnrýnenda. Kemur út 12. október.
Brot úr spennusögu Þórunnar Erlu-Valdimarsdóttur, Mörg eru ljónsins eyru. Höfundur vefur snilldarlega saman örlög persóna sinna í áleitinni og afar spennandi sögu þar sem afbrýðisemi og græðgi ráða för. Kemur út um miðjan október.
Brot úr einni umtöluðustu spennusögu ársins, Dávaldinum eftir Lars Kepler. Bók þessi sló sænska lesendur gjörsamlega kylliflata. Síðan breiddist orðspor hennar um allar jarðir og nú hefur útgáfurétturinn verið seldur til 34 landa. Sálfræðilegur tryllir sem rígheldur frá fyrstu síðu. Kemur út í lok október.
Brot úr metsölukrimmanum Spádómar Nostradamusar eftir Mario Reading. Sjáandinn mikli orti þúsund spádómsvísur en aðeins 942 þeirra hafa varðveist. Hvað stendur í hinum 58 sem upp á vantar? Haglega fléttuð og æsispennandi bók sem hefur farið sigurför um heiminn.