Um bókina
Það er hlutverk Ralfs rústara að vera vondi kallinn í tölvuleiknum Felix Fixari en hann langar til þess að prófa að vera góði kallinn.
Ralf ákveður því að vinna medalíu til þess að sýna fram á að hann sé ekki vondur, þrátt fyrir allt. Hann skellir sér yfir í aðra tölvuleiki og í einum þeirra hittir hann stúlku að nafni Vanellópa. Verður Ralf góði kallinn og hjálpar henni? Eða er hann bara vondi kallinn sem kann ekkert annað en að rústa öllu sem á vegi hans verður?
Bókinni fylgir geisladiskur með upplestri af sögunni. Einnig er lesskilningshefti á www.edda.is/lesskilningur.























