Dauði Francos

2.990 kr. – 3.990 kr.

[ti_wishlists_addtowishlist]

Um bókina

Árið 1975 fylgist Guðbergur Bergsson með nokkurra vikna dauðastríði Franciscos Francos, þjóðarleiðtoga Spánar, og skrásetur í dagbók. Einræðisherrann hafði þá ríkt yfir landinu í rúm þrjátíu og fimm ár. Brot úr dagbókinni birtist á sínum tíma í dagblaðinu Þjóðviljanum en hér má í fyrsta skipti líta skrásetninguna í heild sinni. Guðbergur dregur upp einstaka mynd af endalokum einræðisherra á tímum vaxandi vísindatrúar í einu af höfuðvígjum kaþólskunnar á meginlandi Evrópu. Hann lýsir jafnframt þeirri ringulreið sem skapast í samfélaginu við yfirvofandi fráfall þjóðarleiðtogans.

Guðbergur Bergsson er einn dáðasti, áhrifamesti og umdeildasti höfundur síðari ára á Íslandi. Hann er margverðlaunaður og verk hans hafa verið þýdd á fjölda tungumála. Guðbergur bjó á Spáni um árabil og eftir hann liggur fjöldi þýðinga á spænskum, portúgölskum og rómansk-amerískum bókmenntum. Guðbergur lést 4. september 2023.

ATH. Spurt og svarað um rafbækur.

Reviews

There are no reviews yet.

Be the first to review “Dauði Francos”

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning