Morðin í Háskólabíó: Stella Blómkvist #11
1.490 kr. – 3.490 kr.
[ti_wishlists_addtowishlist]
Um bókina
… ég sé enn dökku augun hennar … hún horfði á mig meðan presturinn var að nauðga henni … bað mig að hjálpa sér en ég gerði það ekki …
Prestur á líknardeild leitar til Stellu með hinstu játningu sem snýst um nauðgun og hvarf tólf ára stúlku norður á Ströndum tuttugu árum fyrr. Gömul kærasta Stellu verður fyrir dularfullri líkamsárás á Snæfellsnesi og skjólstæðingur ferst í hrikalegri sprengingu á flokksþingi Þjóðfrelsisflokksins í Háskólabíó. Það er því í nógu að snúast fyrir grjótharðan lögmann sem lætur ekkert stöðva sig í að fá réttlætinu framgengt.
Stella Blómkvist hefur haldið svartfuglum, jakkalökkum og glæponum við efnið í meira en tvo áratugi og á dyggan aðdáendahóp. Morðin í Háskólabíó er ellefta bókin um stjörnulögmanninn kjaftfora.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 7 klukkustundir og 5 mínútur að lengd. Aníta Briem les.












2 reviews for Morðin í Háskólabíó: Stella Blómkvist #11
embla –
„Sagan rennur vel og hæfileg lengdin gerir það að verkum að auðvelt er að lesa hana í einum rykk. Þægileg lesning.“
Steinþór Guðbjartsson / Morgunblaðið
Ester Ósk –
„Stella beitir húmornum og léttleikanum til að koma á framfæri samfélagsgagnrýni sem hefur iðulega ekki farið hátt í umfjöllunum um verk hennar, en hittir hinsvegar í mark …“
Úlfhildur Dagsdóttir/bokmenntaborgin.is (um Morðið í Gróttu)