Létt og loftsteikt í Air Fryer: hollir réttir á hálftíma

6.290 kr.

[ti_wishlists_addtowishlist]

Um bókina

Í þessari fjölbreyttu og efnismiklu bók heldur Nathan Anthony, sem gert hefur garðinn frægan á samfélagsmiðlum undir heitinu Bored of Lunch, áfram að kenna áhugasömum að elda bragðgóðan og fyrirhafnarlítinn heimilismat í air fryer.

Hér er að finna fjölda uppskrifta að hversdagsréttum og máltíðum í anda vinsælla heimsendra rétta, svo sem fiski og frönskum, kjötbollum með marinara-sósu, stökksteiktum kjúklingi og matarmiklu nachos, auk uppskrifta að meðlæti, snarli og sæt ­ meti, og það tekur í mesta lagi hálf ­ tíma að reiða fram kræsingarnar.

Matreiðslan er ekki bara fljótleg heldur eru loftsteiktir réttir hitaeiningasnauðari en gengur og gerist þannig að þeirra má njóta með góðri samvisku – oft í viku. Heilsusamlegur og seðjandi matur fyrir alla fjölskylduna og uppskriftir sem spara tíma og fyrirhöfn.

Nanna Rögnvaldardóttir þýddi.

Reviews

There are no reviews yet.

Be the first to review “Létt og loftsteikt í Air Fryer: hollir réttir á hálftíma”

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning