Leikurinn

3.290 kr. – 4.990 kr.

[ti_wishlists_addtowishlist]

Um bókina

Þegar fyrstu kanínunni tekst að troða sér upp á milli gólffjalanna hellist skelfingin yfir Elías. Þau geta hvergi flúið.

Elías getur varla slitið sig frá nýja tölvuleiknum sínum. Hann gerist á eyðilegum bóndabæ og gengur út á að forða sér frá brjáluðum kanínum sem þvælast um húsið og skóginn í kring. Þær virðast hafa stökkbreyst eða smitast af hræðilegum sjúkdómi, að minnsta kosti ráðast þær á allt sem hreyfist. Þetta hljómar kannski ekki svo hræðilega – en er það!
Eitt kvöldið uppgötvar Elías að bóndabærinn er til í alvörunni og stendur bara rétt fyrir utan heimabæ hans. Og það sem verra er, það er eitthvað mikið að kanínunum þar líka.
Leikurinn er fyrsta bókin í bókaflokknum Smit eftir Lisu Bjärbo, með hrollvekjandi litmyndum eftir Kim W. Andersson. Þorir þú að lesa?
Eiríkur Örn Norðdahl þýddi.

Reviews

There are no reviews yet.

Be the first to review “Leikurinn”

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning