Landkostir – úrval greina um sambúð lands og þjóðar, 1927-1984

990 kr. – 3.490 kr.

Landkostir - Halldór Laxness
[ti_wishlists_addtowishlist]

Um bókina

Allan sinn höfundarferil var Halldór Laxness ötull samfélagsrýnir og skrifaði beittar ritgerðir og blaðagreinar samhliða skáldskapnum.

Það ríkti aldrei lognmolla í skrifum hans og hann var óhræddur við að tyfta samlanda sína og taka sér stöðu barnsins sem bendir á klæðleysi keisarans. Mörgum mislíkaði hreinskiptni skáldsins og óbilgirni gagnvart heimsku og heimóttarskap, en öðrum urðu þessar gagnrýnu greinar ómetanlegur innblástur.

Hér hefur verið safnað saman greinum sem Halldór skrifaði á löngu árabili um sambúð lands og þjóðar – umhverfið sem við hrærumst í og umgengni okkar við það. Sumar greinanna bera augljós merki þess að vera innlegg í deilumál síns tíma, aðrar hafa víðari skírskotun, en allar eiga þær erindi við samtímann, ýmist sem merkilegar heimildir um málefni sem brunnu á fólki á liðinni öld eða sem sígild sannindi og áríðandi boðskapur sem ekki fyrnist.

Halldór Þorgeirsson valdi greinarnar.

2 reviews for Landkostir – úrval greina um sambúð lands og þjóðar, 1927-1984

Add a review

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning