Um bókina
Fyrsta bókin í myndasögubókaflokknum vinsæla Hjartastopp eftir breska höfundinn Alice Oseman. Hér segir frá skólastrákunum Nick Nelson og Charlie Spring og djúpri vináttu þeirra sem þróast í ást.
Rómantískar, innilegar og skemmtilegar bækur með fallegum og raunsæjum lýsingum á unglingum.
Hjartastopp hefur farið sigurför um heiminn, auk þess sem sjónvarpsþáttaseríur byggðar á bókunum hafa slegið í gegn á streymisveitunni Netflix.
Erla Elíasdóttir Völudóttir þýddi.
















1 review for Hjartastopp #1
embla –
„Hjartastopp er falleg og vönduð saga fyrir ungmenni af öllum kynjum og kynheigðum. … Það er einstaklega gleðilegt að sjá hinsegin bókmenntir brjótast inn í meginstraum ungmennabókmennta og hvað þá í formi sem lengi hefur verið jafn jaðarsett og myndasögur!“
Þorvaldur S. Helgason / Bókmenntavefurinn