Harmljóð um hest

12.390 kr.

[ti_wishlists_addtowishlist]

Um bókina

Harmljóð um hest eftir Hlyn Pálmason inniheldur um 80 ljósmyndir af dauðum hesti úti í haga sem smámsaman brotnar niður og samlagast jörðinni.

Verkið er sjónrænn sorgarsálmur, eins konar virðingarvottur til íslenska hestsins sem spilað hefur veigamikið hlutverk í mótun og sögu Íslands“, eins og Hlynur kemst að orði.

Um leið talar verkið með afar sterkum hætti inn í fagurfræði samtímans, ekki síst með skírskotun sinni til umhverfismála og loftslagsvár.

Hlynur er einn af fremstu kvikmyndagerðarmönnum þjóðarinnar en nýjasta mynd hans, Volaða land (2022), var tilnefnd til Óskarsverðlaunanna fyrir Íslands hönd.

Soffía Auður Birgisdóttir ritar inngang að bókinni.

Bókin er hönnuð af Arnari Frey Guðmundssyni og Birnu Geirfinnsdóttur hjá Stúdíó stúdíó.

Reviews

There are no reviews yet.

Be the first to review “Harmljóð um hest”

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning