Um bókina
Öll líkindi við fólk, lífs eða liðið, eru einber tilviljun … eða ekki? Hvernig liði þér ef spennutryllirinn sem þú værir að lesa fjallaði um … þig?
Ólýsanleg örvænting grípur Catherine þegar hún áttar sig á að atburðir sem hún hefur kvalist yfir og haldið leyndum í tuttugu ár eru orðnir að sögu í bók. Hver getur mögulega hafa skrifað hana? Enginn lifandi maður á að þekkja leyndarmál hennar …
Fyrirvari er taugatrekkjandi spennusaga um líf sem lagt er í rúst og hefnd sem engu eirir, um rangar ákvarðanir og misgerðir sem enginn getur réttlætt. Fortíðin verður ekki aftur tekin.
Guðni Kolbeinsson þýddi.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 10 klukkustundir og 15 mínútur að lengd. Álfrún Helga Örnólfsdóttir, Arnar Jónsson, Guðmundur Ingi Þorvaldsson, Rósa Guðný Þórsdóttir og Haraldur Ari Stefánsson lesa.












6 reviews for Fyrirvari
Elín Pálsdóttir –
„Afar spennandi og endirinn mjög svo óvæntur.“
Guðríður Haraldsdóttir / Vikan
Elín Pálsdóttir –
„Fyrsta skáldsaga Renée Knight er byggð á eitursnjallri hugmynd.“
Daily Express
Elín Pálsdóttir –
„… alveg einstök bók … sérlega snjöll og óvænt flétta, svo frábærlega úthugsuð að lesandinn veit ekki sitt rjúkandi ráð.“
New York Times
Elín Pálsdóttir –
„Sterkt andrúmsloft og óvænt atburðarás … sálfræðileg spennusaga sem rígheldur.“
Kirkus Reviews
Elín Pálsdóttir –
„Þessi hrollvekjandi saga um sekt og sorg stefnir hraðbyri að algerlega óvæntum endalokum …“
Publishers Weekly
Elín Pálsdóttir –
„Saga sem ekki er hægt að leggja frá sér …“
Sunday Times