Flöskuskeyti frá P: Deild Q #3

490 kr. – 1.990 kr.

Flöskuskeyti frá P
[ti_wishlists_addtowishlist]

Um bókina

Á lögreglustöðinni í Wick, nyrst í Skotlandi, hafði óralengi staðið rispuð flaska með bréfi í. Enginn gaf henni gaum eða velti fyrir sér hvað orðið þýddi sem mátti lesa gegnum glerið: HJÁLP.

Þegar Carl Mørck í Deild Q hjá dönsku lögreglunni fær flöskuskeytið í hendur telur hann að um barnabrek sé að ræða en því betur sem Assad aðstoðarmaður hans skoðar velkt skeytið, því betur átta þeir sig á skilaboðum þess, að tveimur drengjum hafi verið rænt á tíunda áratugnum. En hvaða drengir voru það og af hverju var hvarf þeirra aldrei tilkynnt? Smám saman flækjast Carl og Assad í net gáfaðs og tilfinningalauss mannræningja – sem reynist enn vera að.

Flöskuskeyti frá P er af mörgum talin  magnaðasta saga Jussi Adler-Olsen og hlaut Glerlykilinn sem besta norræna glæpasagan árið 2010.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er 18 klukkustundir og 34 mínútur að lengd. Davíð Guðbrandsson les.

3 reviews for Flöskuskeyti frá P: Deild Q #3

Add a review

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning