Emma

1.990 kr. – 5.990 kr.

Emma eftir Jane Austen
[ti_wishlists_addtowishlist]

Um bókina

Emma Woodhouse er falleg, vel gefin, orðheppin og auðug. Hún sýnir vonbiðlum sínum engan áhuga en hefur af því bestu skemmtun að ráðstafa öllum í kringum sig í hjónaband.

Þegar hún tekur unga ættlausa stúlku, Harriet Smith, undir sinn verndarvæng fer hún undireins að leita að hæfilegu mannsefni handa henni þó að vinur hennar, herra Knightley, vari hana eindregið við því. Það er ekki fyrr en Harriet velur sér sjálf mann sem Emma áttar sig á hvað leynist í hennar eigin hjarta.

Emma er, ásamt Hroka og hleypidómum, vinsælasta verk bresku skáldkonunnar Jane Austen, dillandi fjörug og skemmtileg saga af ástamálum ungs fólks sem reynast vera söm við sig þótt aldir líði.

Salka Guðmundsdóttir þýddi.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Silja Aðalsteinsdóttir les.

Hér má hlusta á hljóðbrot úr bókinni:

 

2 reviews for Emma

Add a review

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning