Drengurinn sem hætti að gráta

4.390 kr.

[ti_wishlists_addtowishlist]

Um bókina

Á hlýju ágústkvöldi í Hagfors brennur einbýlishús til grunna. Rúmlega fertug kona lætur lífið. Í fyrstu er talið að eldingu hafi lostið í húsið en brátt kemur í ljós að um íkveikju var að ræða. Nokkrum dögum síðar kviknar í húsinu við hliðina. Og síðan í enn einu.
Ótti grípur um sig meðal íbúanna í þessum litla bæ í Värmlandi. Hvar brennur næst? Lögreglan er ráðþrota. Blaðakonan Magdalena Hansson fer á stúfana. Áður en varir er hún komin á kaf í æsilega og stórhættulega leit að sökudólgnum.
Elín Guðmundsdóttir íslenskaði.
Drengurinn sem hætti að gráta er sjálfstæð bók í hinni margrómuðu Hagfors-seríu eftir sænsku glæpasagnadrottninguna Ninni Schulman um blaðakonuna Magdalenu Hansson. Fyrri bækurnar í seríunni eru Stúlkan með snjóinn í hárinu, Leyndarmálið okkar, Velkomin heim og Þegar allar klukkur stöðvast, sem allar hafa fengið frábærar viðtökur íslenskra lesenda.

Reviews

There are no reviews yet.

Be the first to review “Drengurinn sem hætti að gráta”

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning