Dalalíf IV – Laun syndarinnar

990 kr. – 3.490 kr.

Dalalíf IV
[ti_wishlists_addtowishlist]

Um bókina

Vetrarnóttin, kolsvört og draumarík, hefur alltaf verið hjálpleg ófrjálsum ástum og kitlandi ástríðum.

Lína á ekkert mótstöðuafl til gagnvart elskhuga sínum, glæsimenninu Jóni á Nautaflötum. En þegar hún verður barnshafandi þarf að bjarga málum tafarlaust svo að Anna Friðriksdóttir frétti ekki af hjúskaparbrotinu. Lína stingur sjálf upp á því að giftast Dodda, vitgranna bóndanum á Jarðbrú; hún kýs frekar þann versta en þann næstbesta.

Dalalíf Guðrúnar frá Lundi afhjúpar miskunnarleysi íslensks samfélags á fyrri öldum þegar konum hefndist grimmilega fyrir ástir í meinum. Hún dregur líka upp skýra mynd af veikluðu frúnni á höfuðbólinu og átök þeirra kvennanna verða öllum ógleymanleg. Guðrún hóf rithöfundarferil sinn seint en varð fljótt einn vinsælasti höfundur landsins.

<stATH. Tvær gerðir hljóðbóka eru í boði fyrir þessa vöru. Hljóðbókin er til á geisladiski (CD eða Mp3) sem afhendist í pósti eða úr verslun en einnig er hægt að fá hljóðbók sem er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á beint í gegnum app Forlagsins eða vafra (Hljóðbók – App). Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er 19 klukkustundir og 33 mínútur að lengd. Þórunn Hjartardóttir les.

Reviews

There are no reviews yet.

Be the first to review “Dalalíf IV – Laun syndarinnar”

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning