Ýlfrað af ánægju

Metsölubókin Nýtt tungl er komin út í kilju. Tunglsjúkir aðdáendur Stephanie Meyer fylgjast grannt með vampírusögum hennar enda eru þar á ferðinni alveg frábærar fantasíubækur. Í Nýju tungli æsast leikar heldur illilega þegar varúlfar blanda sér í hasarinn hjá Bellu og Edward. Eins og berlega sést á meðfylgjandi mynd  má gera því skóna að varúlfar séu engin lömb að leika sér við en þessir kippukappar eru leikarar í samnefndri kvikmynd sem byggir á bókinni.

Þriðja bókin í seríunni er síðan væntanleg með vorblænum.


INNskráning

Nýskráning