Yfirsýn

Yfirsýn Sigurgeirs Sigurjónssonar

Í þessari ævintýralegu ljósmyndabók Yfirsýn fáum við alveg nýja sýn á landið okkar – við sjáum það með augum fuglsins fljúgandi enda eru ljósmyndirnar teknar úr þyrlu.  Hér birtast óbyggðirnar í sínum óendanlega  fjölbreytileika og litagnótt, kynjamyndir í jöklum og klettum, ám og vötnum, fjörum, sjávarbrimi og fjallatindum, eins og málverk eftir ókunnan snilling.

Sjálf bókin er sérlega  fallegur prentgripur, seld í handunninni öskju og með hverri bók fylgir mynd, sérstaklega stækkuð af listamanninum sjálfum og árituð af honum. Bókin er í óvenju stóru broti, prentuð á vandaðan pappír svo að hver opna verður sannkallað listaverk.

Sigurgeir Sigurjónsson ljósmyndari hefur sent frá sér fjölda ljósmyndabóka með myndum úr íslenskri náttúru sem margar hverjar hafa náð miklum vinsældum, og nægir þar að nefna Íslandslag, Amazing Iceland og  Lost in Iceland.

Í bókinni er texti eftir Guðmund Andra Thorsson sem hugleiðir þessar mögnuðu myndir á sinn ljóðræna og íhugula hátt.

Bókin er væntanleg um miðjan október en í Hafnarborg mun opna sýning á myndum Sigurgeirs úr bókinni á fimmtudag, 29. október.

INNskráning

Nýskráning