Bók danska heilsuráðgjafans Lene Hansson, Léttara og betra líf, hefur slegið laglega í gegn og nú eru vörur úr heilsulínu hennar einnig komnar í sölu hérlendis.
Þar má meðal annars finna dásamleg krydd fyrir ýmis tækifæri, bragðgóð te sem bæta meltinguna og hið dúndurholla bygggras sem margir dásama. Vörurnar eru nú til sölu í verslunum Hagkaupa, í Nóatúni og Melabúðinni og í verslunum Krónunnar í Lindum, Mosfellsbæ, Granda, Bíldshöfða og Selfossi. Þú finnur meiri fróðleik um vörur Lene Hansson aftast í bókinni og á heimasíðunni hennar.