Anne B. Ragde

Anna B. Ragde með nýja bók

Norski rithöfundurinn Anna B. Ragde er dáð og elskuð af fjölmörgum lesendum þríleiksins sem kenndur er við Berlínaraspirnar. Ríkissjónvarið sýndi vandaða seríu byggða á fyrstu bókinni, Berlínaröspunum, nú í vor og minnkaði aðdáendahópurinn síst við það. Nú kætum við það þá unnendur með nýrri bók eftir Önnu, Arsenikturninn, kemur út nú á haustdögum á vegum Máls og menningar.

Arsenikturninn er óvenjuleg og heillandi ættarsaga sem erfitt er að leggja frá sér. Dularfull, grimm og sár saga um óbugandi lífsvilja, ófleyga drauma og afdrifaríkar ástir. Þegar amma Therese deyr – gamla revíusöngkonan Amalie Thalía sem heillaði Kaupmannahafnarbúa  forðum tíð – opnast gamlar grafir sem geyma vel falin fjölskylduleyndarmál. Therese hefur aldrei skilið hvers vegna móðir hennar, Ruby, hataði móður sína svo mjög að hún fagnar dauða hennar. Ruby hefur fyrir sitt leyti aldrei skilið hvers vegna móðir hennar var sá þversagnakenndi gallagripur sem hún var. Við förum hægt aftur í tímann og kynnumst kynslóðunum, hverri af annarri, uns allt liggur ljóst fyrir…

INNskráning

Nýskráning