Nora Roberts

Vitnið fær fjórar stjörnur í Mogga

Steinþór Guðbjartsson gefur Vitninu eftir Noru Roberts fjórar stjörnur í dómi sínum í Morgunblaðinu í dag og segir: „Það hlýtur að vera skelfileg lífsreynsla fyrir ungmenni að verða vitni að morðum og þurfa síðan að villa á sér heimildir og lifa á flótta undan glæpamönnum sem svífast einskis. Eiga engan að og geta engum treyst nema sér sjálfum fyrr en hjálpin berst meira en áratug síðar. Þetta er í stuttu máli söguþráðurinn í rómantísku spennusögunni Vitninu.“  Hann kvartar ekkert undan því að þetta sé „stelpusaga“ en finnst hún vel skrifuð og persónulýsingarnar sérlega lifandi: „Þessi eilífa barátta góðs og ills leikur í höndunum á Noru Roberts og það er auðvelt að taka afstöðu á móti hrottunum og þeim sem halda að þeir ráði öllu og geti stjórnað öllu.“ Honum finnst meira að segja aðalpersónan minna á Lisbeth Salander í þríleik Stiegs Larssons: „Hún getur allt, kann að nota gáfurnar og er snillingur í að verja sig. … Vitnið er ágætis tilbreyting frá þessum hörðu krimmum og sænsku vandamálasögunum. Þótt enginn komist með tærnar þar sem Jack Reacher er með hælana er líka rými fyrir mjúka fólkið og það getur verið hart í horn að taka þegar á þarf að halda. Vitnið sýnir það svo ekki verður um villst.“

INNskráning

Nýskráning