Ævar vísindamaður hefur um árabil kynnt töfra tækni og vísinda fyrir ungmennum á öllum aldri og nú kemur hann fram ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands í sannkölluðum sinfónískum vísindatrylli.
Tónleikarnir fara fram í Eldborgarsal Hörpu næsta laugardag, 6. febrúar, uppselt er á fyrri tónleikana kl. 14 en aukatónleikum hefur verið bætt við kl. 16 sem enn eru til miðar á. Hér er hægt að kaupa miða.
Á tónleikunum kynnir Ævar til leiks ýmsar af merkari uppgötvunum mannsandans í samhljómi við Sinfóníuhljómsveitina og Sprengju-Kötu sem verður sérstakur gestur á tónleikunum. Glæsileg tónlist og myndbrot spanna tækniframfarir allt frá upphafi til framtíðar í spennandi ferðalagi undir leiðsögn Ævars vísindamanns.
Hér hljómar tónlist eftir verðlaunatónskáld og stjarnfræðilega vinsæl tónskáld, Íslandsvini og kvikmyndajöfra. Meðal annars má heyra tóna úr himingeimnum, tölvuleikjum, kvikmyndum og sjónvarpsþáttum, ævintýraþrá mannsins er í forgrunni og spennandi kraftar koma við sögu.
Efnisskrá:
Þórður G. Þorvaldsson & Helgi Jónsson: Eureka!
John Williams: Úr Júragarðinum og Stjörnustríði
Leroy Anderson: Ritvélin
Koji Kondo: Úr Super Mario Bros.
Alan Silvestri: Aftur til framtíðar
Stjórnandi:
Bernharður Wilkinson
Kynnir:
Ævar Þór Benediktsson
Sjáumst í vísindastuði á laugardaginn!