Sigurvegarar í Landskeppni í eðlisfræði 2014

Vísindamenn framtíðarinnar

Um helgina voru veitt verðlaun í Landskeppni í efnafræði sem fram fór á dögunum. Í efstu sætum lentu Jóhann Ragnarsson, MR, Atli Freyr Magnússon, MH, Árný Jóhannesdóttir, MR, Sigurður Jens Albertsson, MR, og Jón Hlöðver Friðriksson, MR, og munu fjögur þeirra keppa fyrir Íslands hönd í Ólympíukeppninni í efnafræði sem haldin verður í sumar.

Sigurvegarnir fimm fengu bókaverðlaun frá Forlaginu, stórvirkið Vísindin, sem styttir þeim vonandi stundir meðan á verkfalli framhaldsskólakennara stendur.

Forlagið óskar þessum efnilegu nemendum til hamingju með árangurinn og hlakkar til að sjá til afreka þeirra þegar fram líða stundir.

INNskráning

Nýskráning