Vísindabók Villa

Vísinda-Villi vísindar á Vísindadögum Smáralindar

Næstkomandi laugardag, þann 19. október, ætlar Vísinda-Villi að troða upp á Vísindadögum Smáralindar kl. 14 – í tilefni að útgáfu Vísindabókarinnar! Sérlegur aðstoðarmaður villa, Sprengju-Kata, lætur einnig sjá sig en hún ætlar, ásamt Villa, að sýna börnunum skemmtilegar tilraunir (og kannski búa til litlar sprengjur!).

Gleðskapurinn verður haldinn fyrir framan Hagkaup í Smáralind en að lokinni dagskrá gefst krökkunum tækifæri til þess að hitta Villa og Kötu, taka af sér myndir og fá Vísindabókina sína áritaða, auk þess að fá fríkeypis kleinur og Frissa fríska!

Sjáumst í vísindalegu stuði!

INNskráning

Nýskráning