Úrvalið af bókum fyrir börn og unglinga var blómlegt fyrir jólin og vonandi fengu öll börn að minnsta kosti eina jólabók til að lesa í fríinu.
Átta vinsælustu barnabækur Forlagsins á árinu voru jafn mismunandi og þær eru margar. Flugan sem stöðvaði stríðið eftir Bryndísi Björgvinsdóttur vann Íslensku barnabókaverðlaunin árið 2011. Bókin fjallar um ósköp venjulegar en hugrakkar húsflugur sem láta til sín taka við að koma á friði í stríðshrjáðum löndum. Bókin var einnig tilnefnd til Fjöruverðlaunanna og hefur höfundi verið hrósað fyrir frumlega og skemmtilega sögu með frábærum boðskap.
Víti í Vestmannaeyjum eftir Gunnar Helgason sló rækilega í gegn hjá fótboltaunnendum á öllum aldri en bókin fjallar um lið sem keppir á fótboltamóti í Vestmannaeyjum. Í bókinni er að finna æsispennandi fótboltalýsingar, hádramatíska fjölskyldusögu og sprenghlægilegar uppákomur sem allir ættu að hafa gaman að.
Gerður Kristný sendi frá sér þriðju bókina um forsetann og prinsessuna sívinsælu og heitir bókin Forsetinn, prinsessan og höllin sem svaf. Í bókinni er að finna ný og spennandi ævintýri sem þessar skemmtilegu persónur lenda í og er alveg víst að fjölmargir aðdáendur þessa bókaflokks óskuðu þess heitt að bókin kæmi upp úr einum jólapakkanum. Vonandi rættist óskin.
Kristín Helga Gunnarsdóttir hefur sent frá sér hverja metsölubókina á fætur annarri. Síðustu ár hefur Fíasól heillað mörg börnin upp úr skónum og fyrir þessi jól sendi Kristín Helga frá sér bókina Ríólítregluna sem einnig sló í gegn hjá lesendum á öllum aldri. Ríólítreglan er dularfull saga með ævintýrablæ enda sækir Kristín Helga efnivið sinn í íslenskar þjóðsögur sem hún fléttar svo listilega inn í þessa spennandi samtímasögu.
Dagbók Ólafíu Arndísar var einnig vinsæl fyrir jólin en bókin er sjálfstætt framhald Flateyjarbréfanna sem var afar vinsæl hjá yngri lestrarhestum. Í nýju bókinni er Ólafía Arndís flutt til Dalvíkur og er alls ekki ánægð með það og skrifar um raunir sínar í dagbókina sína.
Náttúrugripasafnið er sjálfstætt framhald Forngripasafnsins sem Sigrún Eldjárn sendi frá sér á síðasta ári. Í bókunum er fylgst með ævintýrum Rúnars og félaga hans. Bókin er fyndin, spennandi og skemmtilega myndskreytt eins og Sigrúnu er einni lagið.
Íslensku húsdýrin og Trölli eftir Bergljótu Arnalds er tilvalin fyrir yngstu bókaormana og virðist þessi bók ætla að vera eins vinsæl hjá börnunum og fyrri bækur Bergljótar. Í bókinni eru íslensku húsdýrin kynnt fyrir börnunum með skemmtilegri sögu um Trölla sem ratar ekki heim til sín en dýrin ákveða að hjálpa honum.
Það er virkilega gaman að sjá hversu fjölbreyttur og fjörugur metsölulisti barnabóka er þetta árið – enda úrvalið frábært og greinilegt að börnin bæði fá og biðja enn um bækur í jólagjöf.