Rithöfundurinn Gerður Kristný mun heimsækja alls átta grunnskóla á Akureyri í næstu viku og lesa upp úr nýjustu bókinni sinni um Prinsessuna á Bessastöðum. Þar verður án efa skellt töluvert uppúr því hún Margrét Elísabet Ingiríður Elísabet Margrét, prinsessa með meiru, er harla uppátækjasöm og það gerist ýmislegt skondið þegar hún lendi í slagtogi með forseta lýðveldisins.
Prinsessan hefur þegar eignast ófáa aðdáendur og hún fer mikinn á samskiptavefnum Facebook.
Guðríður Haraldsdóttir ritstjóri Vikunnar skrifar m.a. um bókina Prinsessan á Bessastöðum:
„Hugmyndaflug höfundar er einstakt og enginn leiðindasiðaboðskapur er í gangi, eins og er í sumum barnabókum og börn sjá í gegnum, heldur bara gleði og kátína. Ég skemmti mér a.m.k. konunglega yfir þessari spriklandi fyndnu og fjörugu bók. Ég las hana fyrir svefninn og sofnaði yfir mig hamingjusöm. Myndir Halldórs Baldurssonar eru líka alveg frábærar.“
Krakkar á Akureyri eiga því von á góðu!