Gómsætt rækjusalat

Vilt þú prófa? Gómsæt uppskrift frá Lene Hansson

Bók danska heilsuráðgjafans Lene Hansson, Léttara og betra líf, trónir á topp metsölulista Eymundsson um þessar mundir. Hjá Lene skiptir matarræðið öllu máli en í bókinni eru tugir spennandi uppskrifta að hollum mat og rétt samsettum máltíðum. Til gamans birtum við hér eina girnilega uppskrift að rækjurétti – þessi er t.d. kjörinn um helgina.

Rækjusalat með kryddjurtum

12–15 risarækjur, hráar og skelflettar
2 msk ólífuolía
1 hvítlauksgeiri
1 cm biti af engifer
5 cm biti af gúrku
10 kirsiberjatómatar
1 vorlaukur
25 g kasjúhnetur
nokkur basilíkulauf
3 dillgreinar

Steiktu rækjurnar í olíunni við góðan hita, ásamt rifnum hvítlauk og engifer.
Skerðu gúrkuna í bita, tómatana í tvennt og laukinn í sneiðar og blandaðu
saman við ásamt hnetum, basilíku og söxuðu dilli.

INNskráning

Nýskráning