„Einu sinni lá við að ég yrði orðlaus. Það var árið 1994. Þá var atkvæðagreiðsla í Svíþjóð um inngöngu í ESB. Ég var á göngu á Vasagötunni í Stokkhólmi. Roskinn maður nam staðar við hlið mér. Hann var mjög vingjarnlegur og fágaður í framkomu og spurði hvort ég væri sá sem hann héldi. Ég svaraði því játandi. Þá spurði hann:– Hvort ætli Kurt Wallander greiði atkvæði með eða móti ESB?“
Svona skrifar Henning Mankell skemmtilega í eftirmála nýjustu bókar sinnar. Sú geymir síðustu sögu Wallanders, hins geysivinsæla rannsóknarlögreglumanns sem svo margir vildu skapað hafa. Aukinheldur skrifar þar ungur norskur glæpasagnahöfundur sem jafnframt er rannsóknarlögreglustjóri um áhrif og arfleifð Wallander-bókanna.
Ómissandi fyrir alla aðdáendur norrænna glæpasagna.