Viðurkenning Rithöfundasjóðs RÚV

Skáldkonan Linda Vilhjálmsdóttir hlaut á dögunum viðurkenningu Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins. Verðlaunaféð nemur hálfri milljón króna og afhenti Bergljót S. Kristjánsdóttir, formaður dómnefndar, Lindu verðlaunin við hátíðlega athöfn í Efstaleitinu. Fyrst var veitt úr rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins árið 1956.

Linda hélt stutta ræðu við athöfnina og fylgir hún hér á eftir:

„Þegar ég fór fyrst á stúfana með ljóðin mín í poka, uppúr tvítugu, bjóst ég alls ekki við þeim góðu móttökum sem ég fékk, hjá Silju Aðalsteinsdóttur ritstjóra Tímarits Máls og menningar og Gísla Sigurðssyni umsjónarmanni á Lesbókinni sálugu. Þau gáfu sér bæði tíma til að setjast niður og spjalla við mig, um ljóðið, lífið og skáldskapardraumana, eins og ég væri fullorðin manneskja, og það sem meira var: alvöru ljóðskáld. Ég man að mér þótti það stórmerkilegt á sínum tíma, að svona virðulegir menningarritstjórar hefðu áhuga á því sem ég var að bardúsa, en ég var orðin töluvert eldri og reyndari þegar ég áttaði mig almennilega á því hvað það er dýrmætt fyrir ungt fólk, sem er að feta sig hikandi út á listabrautina, að fá jafn uppbyggilegar og hvetjandi viðtökur og ég mætti víðast hvar á sokkabandsárum mínum á ritvellinum, og sem ég hef verið svo lánsöm að njóta, alla tíð síðan.

Ég get því ekki kvartað, þótt ég hafi reyndar gert það stundum, á mínum verri mómentum, í den. Ekki yfir útgefendum mínum hjá Máli og menningu og Forlaginu, þar sem mér stóðu frá upphafi allar dyr opnar. Ekki yfir lesendum mínum, sem hafa oftsinnis yljað mér um hjartaræturnar með hlýlegum ummælum sínum. Og ekki yfir öðrum skáldum og rithöfundum, sem hafa hvatt mig til dáða frá fyrstu tíð, og veitt mér ómetanlegan stuðning í upplestrartörnum, hér heima, og í útlöndum.

Ég get heldur ekki kvartað yfir fjölmiðlamönnum og gagnrýnendum, sem í flestum tilfellum hafa fjallað um verk mín af áhuga, innsæi og virðingu. Og síst get ég kvartað yfir opinberum listasjóðum, sem hafa oftar en ekki styrkt mig, þegar ég er með sæmilega útfærða hugmynd að sögubók eða ljóðahefti  í höndunum. En eins og menn vita, þá eru ritstörf sjaldnast mjög ábatasöm fyrir íslenska höfunda, alla vega ekki á þann veraldlega mælikvarða sem allt miðaðist við í góðærinu. Og fyrst ég er á annað borð komin út á þann hála ís að tala um styrki og ábata, þá tel ég mér skylt að benda jafnframt á þá augljósu staðreynd að í kringum hvern skapandi listamann er ýmisleg umsýsla og allskonar framleiðsla, þannig að listin sem slík er atvinnuskapandi.

Nú get ég auðvitað ekki fullyrt að þessi reynsla mín sé dæmigerð, og að allir upprennandi listamenn fái jafngóð tækifæri og ég til að sýna hvað í þeim býr, en kannski má samt hafa þessi orð mín til marks um að það sé ekki slæmt hlutskipti að vera skapandi listamaður á Íslandi. Og vonandi að svo verði, enn um sinn.

Þegar hingað var komið í ræðuskrifunum, í fyrradag, vissi ég ekki alveg hvar ég ætlaði að taka upp þráðinn, svo ég ákvað að setja eina hugleiðslu í gang með hjálp tækninnar.  Ég kveikti á geislaspilaranum, settist á stól, lokaði augunum og fór að anda. Ég andaði inn og ég andaði út. Ég virkjaði orkustöðvarnar og bjó mér til kúlu úr gegnsæju rósrauðu efni og sveif svo af stað, uppí himininn, yfir hafið og lengst út í buskann að ókunnri strönd.

En ég náði ekki að einbeita mér. Lágvært murrið í ísskápnum frammí eldhúsi pirraði mig. Og skvampið í þvottavélinni hjálpaði ekki upp á sakirnar. Svo bættist saklaust suðið í fartölvunni við óhljóðin, og á sekúndubroti, breyttist viftan í græjunum úr örsmáum spaða, í nýræstan flugvélahreyfil. Undirtóninn í þessari heimilislegu kakófóníu átti síðan stöðug og hæggeng umferðin við Laugaveginn, sem á góðum degi lætur í eyrum eins og róandi árniður, en þegar verr stendur á hljómar hún eins og skriðdrekalest á leiðinni í stríð.

Og þá glumdi klukkan á holtinu! Og ég áttaði mig skyndilega á því að ekkert af þessum raftækjum var til á heimili mínu fyrstu æviár mín. Stóri Westinghouse ískápurinn kom til dæmis ekki í hús fyrr en við fluttum á Nesið og þá var ég fimm ára. Ég man ekki alveg hvenær þvottavélin með handsnúnu vindunni skaut upp kollinum í kjallaranum en líklega hefur það verið um svipað leyti. Grammófóninn, eða plötuspilarann, eins og tækið var uppnefnt á íslensku, fékk ég svo í jólagjöf frá pabba og mömmu árið sem ég kláraði barnaskólann. Þetta var óttalegt skrapatól úr plasti og tekki sem þurfti að tengja við útvarpið þegar plötu var brugðið á fóninn. Tölvuna þarf ekki að fjölyrða um, en ég get samt nefnt það til gamans, að ég var orðin 25 ára þegar mér tókst loksins að næla mér í rafmagnsritvél sem var guðdómleg búbót fyrir ungskáld með fullkomnunaráráttu. Og þá var það ekkert tiltökumál þótt vélin malaði eins og fiskimjölsverksmiðja á miðri loðnuvertíð.

Þetta eru engin smávægis umskipti! Og samt sýnir þetta dæmi bara örlítið brot af þeim breytingum sem hafa orðið á lífi okkar, á ekki lengri tíma en hálfri öld. Og þá eru ónefndar ýmsar tækninýjungar og umbætur sem hafa gert tilveruna bæði léttari og flóknari í senn: Netið til dæmis og gúgglið og bloggið. Msn-ið, sms-ið og adsl-ið. Ofursímarnir og fjönotatækin svokölluð. Göng í gegnum fjöll og undir firði. Þotur sem þeysast  heimshorna á milli. Fjölskyldujepparnir,  ísmolavélarnar og upphituðu gólfin. Hjartaþræðingar, glasafrjóvganir og líffæraflutningarnir.

Mig langaði að nefna þetta afþví mér finnst að við, sem erum miðaldra á Íslandi í dag, og mörg hver í stjórnunarstöðum, höfum fengið bæði ríflegt og gott veganesti með okkur, í þetta ferðalag. Samt erum við löngu búin með það, og langt komin með að éta næstu kynslóðir út á gaddinn.

Og þá er ég loksins komin að raunverulegu erindi mínu hingað í pontuna:  Að þakka fyrir viðurkenningu rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins, sem ég kýs að líta á sem kærkomna hvatningu til að halda mig við skrifin. Það er mér mikils virði, að hljóta þessa viðurkenningu fyrir verk mín, akkúrat núna, og sérstakur heiður að fá að veita henni viðtöku hér í Útvarpinu sem í mínum huga, er ein af merkustu menningarstofnunum landsins. Og þó að mér finnist það í og með skelfileg ábyrgð, að bætast á listann yfir þann úrvalshóp höfunda sem hafa staðið hér á undan mér, þá má ég til með að segja, að ég met það mjög mikils.

Kærar þakkir fyrir mig.“

– Linda Vilhjálmsdóttir

INNskráning

Nýskráning