Kjartan Yngvi Björnsson og Snæbjörn Brynjarsson

Viðtal við verðlaunahöfunda

Verðlaunahöfundarnir Kjartan Yngvi Björnsson og Snæbjörn Brynjarsson voru teknir tali í morgunútvarpi Rásar 2 að morgni Dags íslenskrar tungu. Þar lýstu þeir skemmtilega hvernig þeir unnu bókina í sameiningu, frumskrifuðu til skiptis og lásu svo hvor eftir annan, og lýstu því jafnframt yfir að þeir væru langt komnir með næstu bók og sennilega yrðu þær fleiri.

Spyrlarnir voru afar hrifnir af sögunni og sögðust varla hafa getað lagt hana frá sér, svo spennandi væri hún. Kjartan og Snæbjörn lýstu því úr hvaða jarðvegi hún er sprottin – sögðust hafa rænt til baka ýmsu sem Tolkien hefði tekið úr íslenskum sagnaarfi en einnig leitað í þjóðsögur og goðsögur, bæði Íslands og annars staðar frá, og nefndu sérstaklega finnska söguljóðið Kalevala. Hlýða má á allt viðtalið hér.

INNskráning

Nýskráning