Leikritið Hreinsun var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu þann 27.október síðastliðin og fá viðskiptavinir Forlagsins 700 króna afslátt af miðaverði á sýninguna. Það eina sem þarf að gera er að láta vita í miðasölunni að þú sért viðskiptavinur Forlagsins. Hér færðu nánari upplýsingar um sýninguna.
Sýningin hefur fengið frábærar viðtökur og lætur engan ósnortin! Hreinsun er meðal umtöluðustu skáldverka undanfarinna ára. Leikritið var frumflutt í finnska Þjóðleikhúsinu árið 2007 og í kjölfarið skrifaði höfundurinn skáldsögu upp úr efni þess sem farið hefur líkt og eldur í sinu um Evrópu, víða orðið metsölubók og sankað að sér verðlaunum. Oksanen hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir Hreinsun á liðnu ári. Skáldsagan kom út hjá Máli og menningu í fyrra og hefur notið mikillar hylli íslenskra lesenda.
Bókin Kýr Stalíns er nú einnig komin út hjá Máli og menningu. Kýr Stalíns er fyrsta skáldsaga Sofi Oksanen, opinská saga um líf þriggja kynslóða kvenna, um þá smán að vera annars flokks, um harkaleg skilin milli austurs og vesturs, um Evrópu sem valdhafar skiptu á milli sín í áratugi með óafmáanlegum afleiðingum. Aðdáendur Sofi Oksanen verða ekki sviknir af þessari bók.