Auður Jónsdóttir

Vetrarsól lofuð í Der Spiegel

Skáldsaga Auðar Jónsdóttur, Vetrarsól, sem kom út árið 2008, fær þrusugóðan dóm í þýska blaðinu Der Spiegel. Í dómi gagnrýnandans Gabrielu Sedel-Hollaender kemur meðal annars fram að Vetrarsól sé hugvitsamlega skrifuð, spennandi og áhrifamikil bók. Einnig er sérstaklega tekið til þess að lestur bókarinnar hvetji fólk til þess að ferðast til Íslands. Bókin  er nýútkomin í Þýskalandi og ber hún þar nafnið Jenseits des Meeres liegt die ganze Welt í þýðingu Kristofs Magnusson.

INNskráning

Nýskráning