Nú er hægt að greiða fyrir vörur og þjónustu á forlagid.is með debetkorti með þjónustu sem heitir Veskið.
Kaupferlið verður einfaldara en áður. Þú skrifar bara inn símanúmer og leyninúmer þitt og kaupum er lokið. Þú þarft aldrei að gefa upp kortanúmerið þitt til aðila sem selja í gegnum Veskið. Þú skráir þig einu sinni og eftir það er einungis notað sýndarnúmer í kaupferlinu. Það fær því enginn að sjá kortanúmerið þitt.
Veskið er rekið af Valitor sem hefur gæðavottanir samkvæmt PCI-DSS og ISO 27001 stöðlunum. Auk þess hefur Veskið staðist úttekt hjá Greiðsluveitunni sem er úttektaraðili greiðslulausna á Íslandi.
Kynntu þér málið: