Jón Ólafsson

Verðskulduð viðurkenning

Jón Ólafsson hlaut Viðurkenningu Hagþenkis 2012 fyrir bókina Appelsínur frá Abkasíu. Vera Hertzsch, Halldór Laxness og hreinsanirnar miklu, en viðurkenningin var veitt við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni 6. mars að viðstöddu fjölmenni.

Hagþenkir hefur árlega allt frá 1987 veitt veglega viðurkenningu fyrir framúrskarandi verk á sviði fræðirita og kennslugagna. Viðurkenningarráð félagsins tilnefnir tíu verk ár hvert og velur síðan eitt sem viðurkenninguna hlýtur.

Í greinargerð ráðsins að þessu sinni segir um bók Jóns: „Áhrifamikil og gagnrýnin greining á kommúnismanum og Gúlagi Sovétríkjanna sem afhjúpar varnarleysi hins almenna borgara.“ Við athöfnina gerði formaður viðurkenningarráðs, Ólafur Nielsen, grein fyrir bókinni og rökstuðningi ráðsins, og í ræðu sinni dró hann fram athyglisverð líkindi með bókunum Appelsínur frá Abkasíu eftir Jón Ólafsson og Ríkisfang ekkert eftir Sigríði Víðis Jónsdóttur sem hlaut viðurkenninguna fyrir ári: „Á vissan máta kallast þær á þessar tvær bækur … Báðar afhjúpa varnarleysi hins almenna borgara gagnvart öflum sem þeir ráða ekkert við og líka hversu langæ áhrif slíkra atburða geta verið, spanna kynslóðir.“

Appelsínur frá Abkasíu kom út sl. haust og hlaut afar góðar viðtökur. Auk Viðurkenningar Hagþenkis var hún tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fræðirita og almenns efnis. Jón Ólafsson stundaði nám í Sovétríkjunum og Bandaríkjunum og lauk doktorsprófi í heimspeki 1999. Hann er prófessor við Háskólann á Bifröst og hefur áður skrifað m.a. bókina Kæru félagar. Íslenskir sósíalistar og Sovétríkin.

INNskráning

Nýskráning