Minni líkur - meiri von

Verðlaunamynd eftir Minni líkur, meiri von

Ný hollensk fjölskyldumynd gerð heftir verðlaunabarnabókinni Minni líkur, meiri von hefur vakið mikla athygli ytra undanfarna daga. Hún var opnunarmynd hollensku barnamyndahátíðarinnar Cinekid og var jafnframt valin besta myndin á hátíðinni. Cinekid er haldin í Amsterdam og 30 öðrum hollenskum börnum og er stærsta hátíð sinnar tegundar í heiminum. Þar skiptir sennilega mestu máli að hún er haldin í vetrarfríi hollenskra barna og laðar að sér 55.000 gesti. Myndin sem ber heitið Patatje Oorlog (Stríðið um frönsku kartöflurnar) er gerð eftir verðlaunabók Marjolijn Hof sem nýlega kom út í íslenskri þýðingu Jónu Dóru Óskarsdóttur. Sýnishorn úr myndinni má sjá hér.

Nú getum við bara vonað að þessa hlýju og skemmtilegu kvikmynd reki á okkar strendur áður en langt um líður en þangað til er upplagt að lesa bókina sem hentar lesendum frá tíu ára aldri og er upplögð fyrir fjölskylduna að lesa saman.

INNskráning

Nýskráning