Eiríkur Örn Norðdahl

Verðlaunabók komin í kilju

Einn óvæntasti smellur síðasta árs, skáldsagan Illska eftir Eirík Örn Norðdahl, er komin út í kilju. Raunar var hún gefin út fyrst í mjúk spjalda útgáfu (stórri kilju) en síðan innbundin þegar sýnt var að hún ætlaði að slá í gegn. Báðar þessar útgáfur eru nú þrotnar en í staðinn kemur nú út ný kilja í minna formati og ódýrari.

Illsku var líka tekið afar vel af gagnrýnendum sem hlóðu hana lofi og stjörnum. Hámarki náðu þessar viðtökur þegar hún hreppti Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrr í þessum mánuði en áður höfðu bóksalar kosið hana bestu skáldsögu ársins.
Illska segir á yfirborðinu ástarsögu þriggja ungmenna í samtíma okkar, Ómars, Agnesar og Arnórs. En sagan hefst raunar löngu fyrr, sumarið 1941, þegar helmingi bæjarbúa litháíska smábæjarins Jurbarkas var slátrað í skógunum í kring. Þannig er Illska bók um helförina og bók um ástina, um Ísland og Litháen, um Agnesi sem elskar Ómar sem elskar Agnesi sem elskar Arnór.

Eiríkur Örn Norðdahl er einn framsæknasti höfundur sinnar kynslóðar og hefur vakið mikla athygli fyrir verk sín, bæði ljóð og skáldsögur.

„ Þessi ástarsaga úr Reykjavík samtímans er notuð til að leiða okkur gegnum þann hluta evrópskrar fortíðar sem okkur finnst hvað erfiðast að takast á við.“
Auður Aðalsteinsdóttir og Ásta Gísladóttir / Spássían

„Stór bók í öllum skilningi.“
Friðrika Benónýsdóttir / Kiljan

INNskráning

Nýskráning