Vigdís Grímsdóttir og Sigríður Víðis

Verðlaunabækur

7. febrúar síðastliðinn voru Menningarverðlaun DV og viðurkenning Hagþenkis afhend við hátíðlega athöfn.

Í Þjóðarbókhlöðunni tók Sigríður Víðis Jónsdóttir á móti viðurkenningu Hagþenkis fyrir bók sína Ríkisfang: Ekkert en alls tíu höfundar voru tilnefndir fyrir framúrskarandi fræðirit, námsgögn eða aðra miðlun fræðilegs efnis til almennings. Sigríður Víðis hefur einnig verið tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, Fjöruverðlaunanna og bóksalaverðlaunanna. Ríkisfang: Ekkert hefur fengið gífurlega umfjöllun og stórgóða dóma og hefur almannaálitið verið að bókin sé algjör skyldulesning sem veiti afar góða innsýn í líf og reynslu flóttafólks.

Í Iðnó voru Menningarverðlaun DV veitt og þar hreppti Vigdís Grímsdóttir hnossið í flokki bókmennta fyrir bók sína Trúir þú á töfra? Bókin kom út fyrir síðustu jól og kætti það fjölmarga aðdáendur Vigdísar að loksins væri komin út ný skáldsaga eftir þessa töfrandi skáldkonu. Gagnrýnendur kættust einnig og kepptust við að lofa bókina og hlaða hana stjörnum.

Forlagið er afar stolt af þessum verðlaunakonum og óskar þeim innilega til hamingju!

INNskráning

Nýskráning