bikar

Verðlauna- og tilnefningagleði

Síðustu dagar hafa verið hressilegir í bókabransanum. Jólabókaflóðið skvettist um og höfundar fá viðurkenningu fyrir verk sín með umfjöllun í fjölmiðlum, verðlaunaveitingum og tilnefningum.

Það sem bar einna hæst voru tilnefningar Fjöruverðlaunanna. Forlagshöfundarnir Auður Jónsdóttir og Kristín Eiríksdóttir hlutu tilnefningu í flokki fagurbókmennta fyrir nýjar skáldsögur sínar og Kristín Helga Gunnarsdóttir hlaut tilnefningu í flokki barna- og unglingabókaþ

Í Kiljunni í vikunni voru bóksalaverðlaunin tilkynnt með formlegum hætti. Bóksalaverðlaunin eru veitt í níu flokkum og þrjú sæti í hverjum flokki. Fjölmargar Forlagsbækur rötuðu á listann og má þar fyrst nefna Illsku sem var valin besta íslenska skáldsagan. Hrafnsauga var valin besta íslenska táningabókin, Ótrúleg saga um risastóra peru var valin besta þýdda barnabókin og Megas var valin besta ljóðabókin.

Forlagið óskar öllum þessum fínu höfundum til hamingju og um leið íslenskum lesendum með að hafa nóg af gæða lesefni yfir jólin!

INNskráning

Nýskráning