Rithöfundurinn Hermann Koch verður meðal gesta á Bókmenntahátíð í Reykjavík í ár en minnugir lesendur muna ábyggilega eftir metsölubókinni Kvöldverðinum og hinni fádæma skemmtilegu bók Sumarhús með sundlaug. Bókmenntahátíð hefst nk. miðvikudag en þá verður Hermann í höfundaviðtali í Norræna húsinu kl. 11.30 ásamt þýðanda sínum Rögnu Sigurðardóttur. Hann les síðan úr verkum sínum í Norræna húsinu á sunnudaginn kl. 15.30. Sjá nánar um dagskrá Bókmenntahátíðar í ár.