Sýning á myndum Sigrúnar Eldjárn verður opnuð í anddyri Þjóðminjasafns Íslands um næstu helgi. Þar munu prýða veggi verk úr tveimur nýjum bókum – Forngripasafninu sem út kom í liðinni viku og bókinni Árstíðir sem kemur út í þessari viku. Staðurinn og tíminn er afar viðeigandi því Þjóðminjasafnið hefur ótvíræða tengingu við innihald fyrri bókarinnar, sem gerist á afar skemmtilegu safni, og á uppákoman á sér stað fyrsta vetrardag sem vísar einmitt til Árstíðabókarinnar sem Sigrún er höfundur að ásamt Þórarni bróður sínum.
Sýningin verður opnuð á laugardaginn kl. 15. Sigrún og Þórarinn munu lesa upp úr bókunum og árita fyrir áhugasama. Einnig verður boðið upp á léttar veitingar. Verið velkomin!