Skáldsaga Einars Más Guðmundssonar, Íslenskir kóngar, kom út í Danmörku í síðustu viku í þýðingu Eriks Skyum-Nielsen. Bókin hefur þegar fengið frábæra dóma í dönsku blöðunum, til dæmis í menningarkálfi Kristeligt Dagblad þar sem Einar er sagður sannur sagnamaður: „Ég slæ því föstu með konunglegum sjötommunagla að frásagnarlist og húmor skortir ekki hjá Einari Má Guðmundssyni,“ skrifar gagnrýnandi blaðsins, Liselotte Wiemer.
Fyrsta umsögnin um bókina var í hinu sögufræga blaði Alt for Damerne en þar fékk hún fimm stjörnur af sex og rýnirinn kallaði hana perlu sem Mark Twain hefði viljað njóta. Í Weekendavisen kom fram að bókin væri „tindrandi skemmtileg“ og í dómi Information er Einari Má líkt við Johannes V. Jensen, Halldór Laxness og Dan Turéll.
Danski forleggjarninn Lindhardt og Ringhof hefur síðan farið frumlegar leiðir í kynningu á bókinni. Þannig skörtuðu allir starfsmenn forlagsins Tangavíkur-húðflúri, í anda kápumyndar bókarinnar, í gær. Myndir af því uppátæki ferðuðust víða og þykir skreytingin bara býsna smart.
Einar Már er á leið í upplestrarferð til Danmerkur og kemur meðal annars tvisvar fram á bókmenntahátíðinni Louisiana Literature 2013, með kanónum eins og Sofi Oksanen, Erlend Loe og Per Petterson, Iam McEwan, Klaus Rifbjerg og Zadie Smith.