Veldu rétta kortið!

Hjá okkur færðu úrval ferðakorta og handbóka um íslenska náttúru og útivistarsvæði. Hvert er förinni heitið í sumar?

Ætlar þú …

að keyra um landið?
Við mælum með Ferðaatlasinum (1: 200 000), Kortabók Máls og menningar (1: 300 000) eða Ferðakortinu (1:600 000) fyrir þá sem aka um landið. Bækurnar eru gormaðar og því handhægar í hanskahólfið. Atlasinn inniheldur 26.600 örnefni og 78 ný kort – ásamt 47 kortum af þéttbýlisstöðum með upplýsingum um þjónustu s.s. gististaði, sundlaugar og tjaldsvæði. Kortabókin inniheldur 60 kortasíður og 38 kort af þéttbýlisstöðum með þjónustuupplýsingum. Aftast í henni er ítarleg nafnaskrá. Ferðakortið inniheldur nýjustu upplýsingar um vegakerfið, tjaldsvæði og sundlaugar og á bakhlið þess er handhæg vegalengdatafla.

að ferðast um ákveðinn landsfjórðung eða -hluta?
Þú hefur val um nokkrar gerðir korta sem skipta landinu upp. Nákvæmust eru Atlaskortin (1:100 000), viðamesti kortaflokkur sem komið hefur út. Þar er landinu skipt upp í 31 svæði. Þau eru fáanleg stök eða saman í öskju.  Landshlutakortin (1:200 000) skipta Íslandi upp í 8 jafna hluta. Þau henta vel ef ferðast á um stórt afmarkað svæði, s.s. Vestfirðina eða Austurland, það gera einnig Fjórðungskortin (1:300 000) sem skipta landinu í fernt og sýna því enn stærra svæði.

að ferðast á hálendinu?
Fyrir hálendisfara mælum við með Landshlutakorti nr. 8 (1:200 000) eða Hálendiskortinu ( 1:300 000) sem sýnir einnig GPS-punkta við helstu vegamót. Aftan á Hálendiskortinu eru líka lýsingar, litmyndir og listi yfir skála á svæðinu.

að fara í göngu?
Við mælum með Sérkortunum (1:100 000) eða Atlaskortunum (1:100 000) fyrir göngufólk og reiðmenn. Sérkortin eru ætluð þeim sem ferðast um vinsælustu útivistarsvæði landsins, þau eru mjög nákvæm og á bakhlið þeirra eru ítarlegri göngukort (1: 50 000), lýsingar og myndir af helstu náttúruperlum. Í Sérkorta-seríunni eru 12 mismunandi kort, þar á meðal af Fjallabaki, Skaftafelli og Hornströndum. Í Atlas-kortaseríunni er 31 kort í sama mælikvarða en þar eru til kort yfir öll svæði landsins.

INNskráning

Nýskráning