Árni Þórarinsson

Vel fléttuð spennusaga

Nýlega kom bókin Ár kattarins út eftir Árna Þórarinsson og fyrir helgi birtist stórgóður dómur um bókina í Fréttablaðinu eftir Friðriku Benónýsdóttur.

Þar segir meðal annars að Árni sé „óragur við að velta upp þeim vandamálum sem hæst ber í samtímanum á hverjum tíma og Ár kattarins er engin undantekning frá þeirri reglu. Hér er skotið föstum skotum á spillingu í stjórnmálaflokkum, óhreint eignarhald á fjölmiðlum, yfirborðslega umfjöllun um ofbeldið í miðbænum, hómófóbíu og slúðurmiðla.“

Friðrika hrósar Árna fyrir vel fléttaða sögu og segir hann hafa „fullt vald á öllum þeim boltum sem hann fleygir á loft.“ Að lokum segir hún Ár kattarins vera best lukkaða bók Árna síðan Tími nornarinnar kom út og kemst að eftirfarandi niðurstöðu í lok dóms: „Óvægin samfélagsádeila og óþægilegar spurningar í vel fléttaðri spennusögu sem kemur við kaun lesandans.“

INNskráning

Nýskráning