Veiða vind

Þúsundir barna veiddu vind í Hörpu

Nýverið kom færeyska barnabókin Veiða vind út í íslenskri þýðingu Þórarins Eldjárns og um helgina var þetta líflega tónlistarævintýri flutt fyrir fullum Eldborgarsal Hörpu  við mikinn fögnuð. Áður höfðu ríflega fjögur þúsund börn hlýtt á ævintýrið á skóla- og leikskólatónleikum og var það mál manna að sjaldan hefði önnur eins gleði ríkt í Hörpu og þá daga.

Sagan er eftir Rakel Helmsdal sem er einn þekktasti barnabókahöfundur Færeyja og íslenskum lesendum að góðu kunn fyrir þátt sinn í bókunum um litla og stóra skrímslið. Janus á Húsagarði á heiðurinn af gullfallegum myndum bókarinnar og Kári Bæk sem samdi tónlistina við söguna.

Sinfóníuhljómsveit Íslands flutti  tónlistarsöguna með aðstoð Benedikts Erlingssonar leikara, en hann les söguna einnig inn á geisladiskinn sem fylgir bókinni.

Í tilefni af tónleikunum komu höfundarnir hingað til lands ásamt færeyskum útgefendum bókarinnar og  árituðu hátt í hundrað bækur að tónleikunum loknum.

INNskráning

Nýskráning