Lokabindi stórbrotinnar ritraðar Guðmundar Páls Ólafssonar um náttúru Íslands, Vatnið, er væntanlegt fimmtudaginn 12. desember!
Í gærdag var síðan tilkynnt að Vatnið hlyti tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fræðirita. Guðmundur féll frá árið 2012 þegar verkið var langt komið en nánir samverkamenn hans hafa búið það til prentunar, þar á meðal dóttir hans Blær sem sér um útlitið og frændi hans Leifur Rögnvaldsson sem annast hefur ljósmyndahliðina. Í þessari bók nálgast höfundur efnið að vanda úr mörgum ólíkum áttum, enda var hann óvenju fjölhæfur maður: náttúrufræðingur og náttúruverndari, rithöfundur, lífsspekingur, kafari, teiknari og ljósmyndari. Guðmundur Páll vann árum saman að þessu verki og ferðaðist víða um heim til að fá sem gleggstan skilning á þýðingu vatnsins fyrir lífið á Jörðinni, en áður hafði hann í baráttu sinni gegn virkjunum sett sig sérlega vel inn í vatnafar Íslands.
Verkið verður um fjögur hundruð síður í stóru broti eins og fyrri verkið, prýtt ótal fögrum ljósmyndum sem langflestar eru eftir Guðmund Pál, kortum og skýringarmyndum, og í því verður vatnið krufið til mergjar í allri sinni óumræðilegu auðlegð.
Vatnið er, eins og aðrar bækur í ritröðinni, mikill fengur fyrir alla Íslendinga og rekur smiðshöggið á glæsta arfleið Guðmundar.