Undir kelduna
2.490 kr.
[ti_wishlists_addtowishlist]
Um bókina
Hvalfjarðargöng voru fyrsta einkaframkvæmd í vegakerfinu á Íslandi, fyrstu neðansjávargöng veraldar í ungu gosbergi, fyrsta fjárfesting sinnar tegundar í Evrópu á vegum bandarísks tryggingafélags og fyrsta fjárfesting íslenskra lífeyrissjóða í einkaframkvæmd. Göngin voru formlega sumarið 1998 og einkarekstri þeirra lauk haustið 2018 þegar Vegagerðin tók við þeim eins og lög gerðu ráð fyrir.
Í bókinni er rakinn aðdragandinn að stofnun Spalar, félagsins sem átti og rak göngin í 20 ár, framkvæmdin, reksturinn og viðburðarík eigendaskipti mannvirkisins. Mikill fróðleikur um merkilegt samgöngumannvirki og líka átaka- og spennusaga bæði í upphafi og lok Spalartímans!













