TMM 1. hefti 2012

1.765 kr.

TMM 1. hefti 2012
[ti_wishlists_addtowishlist]

Um bókina

Komið er nýtt hefti af Tímariti Máls og menningar, 1. hefti 2012. Meðal efnis má nefna grein eftir Salvöru Nordal, formann Stjórnlagaráðs, þar sem hún segir frá störfum ráðsins, setur það í samhengi við störf Þjóðfundar og Stjórnlaganefndar og veltir fyrir sér umræðunni sem þarf að fara fram um breytingar á stjórnarskránni.

Hallgrímur Helgason skrifar fjöruga grein um Guðrúnu frá Lundi og Dalalíf; Jón Karl Helgason ræðir þá Jónas og Bjarna en Snorri Páll Jónsson Úlfhildarson skrifar snarpa grein um óeirðirnar í London og orsakir þeirra.

Allmikið er um skáldskap í heftinu: ljóð eftir Gerði Kristnýju, Sigurlín Bjarneyju Gísladóttur og Eyvind og sögur eftir Einar Má Guðmundsson, Guðmund Brynjólfsson og Rúnar Helga Vignisson. Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur skrifar um nýútkomna listasögu, Árni Bergmann um nýjar bækur þar sem þeir Elías Mar og Þórður Sigtryggsson koma við sögu og Fríða Björk Ingvarsdóttir fjallar ítarlega um þríleik Jóns Kalmans.

Ritstjóri er Guðmundur Andri Thorsson.

Tengdar bækur

TMM 1. hefti 2021
TMM1
TMM 1. hefti 2018
TMM 2. hefti 2010
TMM 2. hefti 2012
TMM3
TMM3
TMM 4. hefti 2013
TMM 4. hefti 2019
TMM 1. hefti 2020
TMM 4. hefti 2015
TMM 3. tbl. 2020

INNskráning

Nýskráning