Sjókonur á Íslandi 1891-1981
1.090 kr.
[ti_wishlists_addtowishlist]
Um bókina
Í þessari bók kannar Þórunn Magnúsdóttir sagnfræðingur sjósókn íslenskra kvenna og byggir á frumheimildum um lögskráða sjómenn á tímabilinu 1891-1981.
Höfundur rekur hvaða störf konur hafa með höndum á skipunum, hvers konar skipum konurnar eru á, hvernig sjósókn þeirra dreifist eftir landshlutum og á mismunandi tímum. Kjör sjókvenna eru athuguð og aðbúnaður og hluttaka þeirra í félögum sjómanna, einnig starfsþjálfun og starfsmenntun. Leitast verður við að leiða í ljós hvaða þýðingu þessi starfsvettvangur hefur haft fyrir konur og hvaða hlut þær hafa átt í fiskveiðum og annarri sjósókn Íslendinga á því tímabili sem rannsóknin nær til.
Bókin er gefin út í ritröðinni Ritsafn Sagnfræðistofnunar.











