Orri óstöðvandi: Bókin hennar Möggu Messi
3.390 kr.
[ti_wishlists_addtowishlist]
Um bókina
Kæri lesandi,
Þá er bókin hennar Möggu Messi loksins tilbúin og hún er ekkert annað en stórkostleg.
Ég vil alls ekki ljóstra of miklu upp en Magga lenti í bandóðum Blikaþjálfara sem reyndi að skemma fyrir henni Rey Cup, VERSTA FÓLK Í HEIMI flutti í húsið við hliðina á henni, foreldrar hennar reyndu að stela jólunum, hún lenti í ótrúlegri uppákomu í Skálafelli og svo varð hálfgert stríðsástand á Reykjum.
Sem betur fer hafði Magga mig með sér til halds og trausts í gegnum þessa vitleysu.























