Lítil tilraun til betra lífs
2.190 kr.
[ti_wishlists_addtowishlist]
Um bókina
Þó að Hendrik Groen sé gamall maður er hann langt í frá dauður úr öllum æðum. Og hann hefur engan áhuga á að þessu fari að ljúka.
Tæknilega séð er hann gamalmenni – en þarf það endilega að þýða að lífið eigi einungis að snúast um að drekka kaffi og bíða eftir sínum hinsta degi? Í leynilega dagbók sína skrifar hann af einlægni um uppreisn vinahópsins á elliheimilinu gegn ríkjandi kerfi og kostulegar uppákomur – en einnig sára depurð og nístandi sorg sem fylgir hrörnun líkama og sálar.
Bókin sló rækilega í gegn í Hollandi þegar hún kom út, sat mánuðum saman á metsölulistum og er nú væntanleg á hátt í þrjátíu tungumálum.











