Elskhuginn

990 kr. – 2.690 kr.

Elskhuginn
[ti_wishlists_addtowishlist]

Um bókina

Ég var á valdi Mirabelle. Það gæti kostað mig starfið. Hún lokaði ekki á eftir sér. Ég nam staðar og leit aftur fyrir mig áður en ég togaði í hurðina. Hún þreif í mig, læsti og þrýsti mér upp að veggnum.

Patrice er þrítugur arkitektanemi af íslenskum ættum sem vinnur með náminu á lúxushóteli í París. Lífið er í föstum skorðum þar til hann kemst í kynni við hina heillandi Mirabelle, konu auðugs demantakaupmanns, sem er að leita sér að nýju leikfangi … eða hvað? Hún getur veitt Patrice meiri unað en hann hefur nokkru sinni áður upplifað en hvað vill hún fá í staðinn og hvers vegna er hún að draga hann inn í heim hinna ríku og frægu?

Hún er heldur ekki eina konan sem kveikir hjá honum ástríðubál og löngun til æsilegs kynlífs – og fyrr en varir er hann kominn í aðstæður sem geta leitt hann á hálar slóðir háskalegra nautna. Karl Fransson er íslenskur rithöfundur sem hefur víða getið sér gott orð og hlotið ýmsar viðurkenningar á ferli sínum en Elskhuginn er fyrsta erótíska skáldsaga hans.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er 12 klukkustundir og 32 mínútur að lengd. Hinkrik Ólafsson les.

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning