Einar Már Guðmundsson

Vappað um Viðey

Við hvetjum gönguglaða og bókmenntafólk til að skella sér út í Viðey í kvöld, þriðjudagskvöldið 13. ágúst. Þá tekur rithöfundurinn Einar Már Guðmundsson á móti gestum á hlaðinu við Viðeyjarstofu og spjallar um eyna út frá skáldverkum sínum. Í þeim skáldsögum Einars sem tengjast Vogahverfinu er Viðey hluti af goðfræði hverfisins við Sundin og eyjan kemur einnig fyrir í nokkrum ljóða hans. Einar mun ræða um Viðey í þessu skáldlega samhengi og hvernig hún hefur leitað á huga hans, ekki bara sem raunveruleiki heldur líka sem skáldskapur og ævintýri.




Dagskráin hefst kl. 19:30 en siglt verður til Viðeyjar frá Skarfabakka kl. 18:15 og 19:15. Kaffihúsið í Viðeyjarstofu verður opið og upp­lagt að njóta kvöld­verðar í Viðey áður en leið­sögn byrjar eða að fá sér hress­ingu að spjalli loknu áður en haldið er heim á leið, en síð­asta ferjan siglir frá Viðey um kl. 22.00.


INNskráning

Nýskráning